8. júlí næstkomandi er stór dagur. Þá verður Ísak fertugur og við höfum ákveðið að fagna lífinu og ástinni með því að ganga í hjónaband.
Athöfnin fer fram í Garðakirkju á Álftanesi klukkan 16:30 og að henni lokinni röltum við yfir í Garðaholt þar sem við ætlum að gleðjast fram eftir kvöldi.
Það væri okkur sönn ánægja ef þú/þið gætuð fagnað ástinni með okkur þennan dag.
Athöfn
16:30 í Garðakirkju á Álftanesi
Veisla
Garðaholt á Álftanesi
17:30 Fordrykkur
18:30 matur
og svo dönsum við inn í nóttina
#huldaogisak